Blogg
12.12.2009
Einungis 12 dagar til jóla...
Júllíhúhú...
Ég er nú langt því frá að vera dugleg á þessu bloggi mínu, og þið verðið bara að taka því ;)
Framkvæmdirnar eru alveg á blússandi siglingu og er iðnaðarmaðurinn okkar hérna allan sinn frítíma og púlar og púlar. Að sjálfsögðu aðstoðum við þegar á þarf en oftast er maður nú bara fyrir ;)
Ég er búin að setja inn myndir sem þið finnið hér að ofan...
Ég og Gurrý vorum svo heppnar að fá að fara með kvenfélagskonum á tónleika með Frostrósum um daginn. Je minn eini, þvílíkt eyrnakonfekt!!! Þessir tónleikar buðu uppá gæsahúð og geðshræringu allan tíman. Þvílíkt og annað eins... ég náði að fjárfesta í 2 cd með þeim, en sá sem mig langaði mest í var uppseldur fyrir tónleika!!
Viktor er eiturhress að vanda og ekki er nú leiðinlegt að vakna og kíkja í skóinn. Hann var alsæll með sveinka þennan morguninn því að hann fékk "tjú-tjú" og smá nammi. Rausnarlegur sá karl
Jájá, annars ætlum við fjölskyldan að vera hérna heima á aðfangadag og er það ofsa spennandi... Eina sem ég er doldið stressuð með, er að skipuleggja daginn, þá aðallega matargerðina, því að ég er að syngja með kórnum í messu kl 18, og ég hef aldrei farið í messu kl 18 á aðfangadag!!! En það verður án efa mjög skemmtilegt og tilbreyting, hlakka bara til ![]()
Hafið það sem allra best,
iRikk
7.12.2009
óðum nálgast jól...
... og er frúin á Melavegi 15 ekki mikið að æsa sig yfir jólagjöfum, því þær eru allar tilbúnar uppá hillu í búrinu, og þá eru það þær gjafir sem ekki eru komnar til sinna eigenda. Jámm, það margborgaði sig að vera snemma á ferðinni með þær því lítill er tíminn til að pola í þeim... þar sem að á heimilinu standa yfir svaka framkvæmdir.
Okkur "hjónunum" var gefin eldhúsinnrétting í fínu standi og var brugðið á það ráð að skella henni upp fyrir júlen... Hversu tilbúið eldhúsið mitt verður fyrir jól veit ég ekki, en það mun allavega e-n tímann verða tilbúið. Og myndi ég setja inn framkvæmdarmyndir en snúrudruslan úr myndavél í tölvu er týnd, svo að þið verðið bara að bíða þolinmóð. Gæjalega borðplatan er á leið í hús í þessari viku, og get ég hreinlega ekki beðið eftir að fá hana.
Baðframkvæmdir munu bíða til nýja ársins, enda ekki hægt að gera allt í einu. Þó er búið að fjárfesta í flísum á gólf og veggi, og upphengt wc. Þá er bara að safna fyrir nýju baðkari og innréttingu...
Þar sem að við Gurrý gegnum í kvenfélagið Björk, áskotnaðist okkur miðar á tónleika með Frostrósum sem kjellurnar ætla að skunda á annað kvöld. Hrikalega hlakkar mér mikið til.
Það er allt á fúll spíd í kirkjukórnum. Stanslausar æfingar og sönglerí. Nú er mikið verið að æfa fyrir komandi jólatónleika sem verða haldnir seinna í þessum mánuði.
Viktor var svo óheppin að fá þessa hálsbólgu/hitapest sem er að ganga hér í bæ. Var veikur fá þri og fram á lau, en er orðinn eldsprækur og gat hreinlega ekki beðið eftir að geta farið í leikskólann að púsla með Fanney.
Við fjölskyldan skruppum í jólabæinn Akureyri um helgina. Alveg svakalega jólalegt þar í bæ. Þar hittum við nýjasta fjölskyldumeðliminn, hana Hnetu Gunnarsdóttur. Offsalega sæt og gullfalleg stúlka. Auðvitað var nú e-ð kíkt í búðir og verslað smá...
Svo má nú ekki annað en minnast á að mín kæra M er afmælisbarn dagsins, orðin xx ára gömul. Innilega til hamingju með það, krúttlan mín.
Jæja, læt þetta gott heita.
Hafið það sem allra best
iRikk
23.11.2009
aaaaaansi langt síðan síðast...
Já, það er orðið ansi langt síðan síðast... Hef hreinlega ekki haft tíma né nennu til að rita hér fáein orð en allt í einu kom löngunin og er það vel. Samt er nú alveg magnað hvað Facebook er mikill tímaþjófur, og ótrúlegt hvað maður nenni að hanga þarna og skoða nánast það sama aftur og aftur.. Klikkun, jú að vissu leyti myndi ég telja ![]()
Jæja, en nóg um það...
Hjá okkur á Melaveginum hefur nú margt gerst og líka ekki...
Frúin á heimilinu skellti sér í kirkjukórinn og sér alls ekki eftir því!! Alveg hrikalega skemmtilegt, að ég tali nú ekki um þegar jólalögin eru komin á dagskránna. Skemmtilegur félagsskapur og mjög svo skemmtileg lög.
Annars er ég líka komin í kvenfélagið Björk. Við Gurrý "létum plata" okkur í bökunarþrælabúðir staðarins.... já reyndar ekki, en þetta er víst einkenni félagsins, að konurnar baki daginn út og inn... en nei, svo er ekki. Og þarf maður ekki að baka frekar en maður vill
Erum nú reyndar einungis búnar að fara á einn fund og þar við sat, í kvenfélagið erum við komnar, bara gaman að því ;)
Viktor er gífurlega hress og kátur. Málörvun hans er alveg skínandi góð og verður sífellt betri með hverjum deginum. Hann fær líka frábæra aðstoð hjá Sigurbjörgu í leikskólanum.
Hjá honum er auðvitað tjútjú, Thomas the tank engine, efst á listanum yfir jólagjafir og það er nú ekki hjá því komist að hann fái nú e-ð því tagi
Við Valdi splæstum í Thomas the tank engine rúm handa peyja og sá var nú ánægður þegar hann sá gripinn.
Það er nú lítið að frétta af námi, get bara eitt sagt að það mun EKKI standa í símaskránni eftir x ár: Ingunn Elsa Rafnsdóttir, iðjuþjálfi......augljós vísbending sem þarfnast ekki frekari útskýringa....
Nú, senn líður að jólum og hlakka mig mikið til. Seríurnar löngu komnar upp og er á báða vegu hvort þetta sé klikkun eða ekki. iss, piss, alveg sama hvað fólki finnst, mér finnst þetta afskaplega mikið augnayndi og myndi gjarnan vilja setja þær fyrr upp og hafa þau lengur
Númm, hvað jólagjafir varðar þá eru einungis 4 eftir á þessu heimili og munu þær klárast fyrir mán.mót. jii hvað ég verð fegin þegar þær klárst, enda eru þessar jólagjafapælingar og framkvæmdir búnar að standa yfir síðan í apríl..
Þess má geta að Óla (systir Valda) og Gunni eignuðust stúlku á dögunum, nánar tiltekið þann 12 nóvember. Fullkomin prinsessa þar á ferð..
Innilega til hamingju með dömuna, elskurnar mínar. Hlökkum til að koma til ykkar og knúsa krílið, já og ykkur
![]()
Svo fékk Valdi lopapeysu frá frúnni. Upphaflega átti hún að vera jólagjöf en þar sem við erum að fara að standa í smá framkvæmdum þá ákváðum við að kaupa okkur e-ð í þær í staðinn fyrir jólagjafir... svo að eftir margra daga leynimakk, gat ég loksins prjónað heima með manninn á heimilinu, því ég gat auðvitað bara prjónað hana þegar hann var fjarverandi. Þá var klukkan stillt á 11:45, og öllu pakkað niður þegar hann kom í hádegismat ![]()
Ekki alveg fullkláruð en þó bara hettan eftir... og Valdinn alveg alsæll með gripinn ;) ( þó svo að það sjáist ekki á honum á þessum myndum :)
Læt þetta mas duga í bili.
Bið ykkur vel að lifa og hafið það sem allra best
iRikk
16.9.2009
senn líður að...
Já, talandi um jólin. Það er nú aldeilis ekki langt í þau og er ég endalaust að pæla og spekúlera í þeim. Hér á bæ er búið að pakka inn og slaufffa 9 gjafir. Ég er búin að ákveða að vera ekki að stressa mig yfir því að ná ekki að búa til handa öllum svo að ég er líka kaupa hitt og þetta í hina pakkana, og men hvað það er þægilegt og gott að hugsa til þess að desember, 7,9,13, verði nú ekki alveg eins annasamur og ef að ég ætti allar gjafirnar eftir líka. Því líkt og í fyrra þá mun mín vera á fullu að læra undir samkeppnisprófin..
Já, talandi um prófin, þá gengur skólinn ágætlega. Mikið að læra og margar upplýsingar og fræði sem berjast við að komast inn í þennan svokallaða heila. Úff, það sem að mér finnst hann vera stundum á barmi verkfalls, og neiti að taka inn allt þetta mikilvæga og merkilega sem ég rembist við að muna og skilja.. Ég komst nú, skiljanlega, lifandi frá staðlotunni í ágúst og þóttist ég nú sosum vita það. Ég þarf alltaf að gera mér þann óleik að mikla svona samkundur fyrir mér, og á barmi hjarta- og taugaáfalls skalf ég inn í skólann og mér til ágætis léttis sá ég að margir voru í svipuðu ástandi og ég. En öll lifðum við nú af ;)
og talandi um að lifa af!! Þegar veturinn færist yfir og dimma tekur, á ég voða bágt stundum, því að ég er svo hrikalega myrkfælin. Verst þykir mér ef ég er ein frammi, drengirnir farnir að sofa, og ég er að slökkva öll ljós og sonna, á skelfir mig ekkert meira en svartar rúðurnar og tala nú ekki um ef að vindurinn hvín. Mér til óleiks, aftur, þá fer ímyndunaraflið á flug, og ég hræði mig svo mikið, því ég fer oft/ nánast alltaf að hugsa, ok, ég má ekki horfa út um þennan glugga því þá gæti birst e-ð ógurlegt andlit, ætli það sé e-ð þarna bak við hurðina o.s.frv. Þetta er alveg skelfilega óþægilegt og ég verð ekki róleg fyrr en ég er komin uppí rúm!! Svo þegar hræðslan er runnin af, þá get ég nú ekki annað gert en hlegið að sjálfri mér fyrir þennan aulaskap...
nú, talandi um hlátur!! Mig vantar oft að hlæja og hef fundið fyrir mikilli þörf að því undanfarið, Nú þá geri ég mér lítið fyrir og fer á youtube og horfi á allskonar bloopers og svoleiðis. Þar er sko margt að finna... t.d þennan...
..þetta finnst mér alltaf fyndið...
Jæja, best að snúa sér að lærdómnum.
Hafið það sem allra best,
iRikk
24.8.2009
Jingle bells, jingle bells, jingle all the way...
Nú, það er nú sosum ekki mikið að frétta héðan af bæ en vegna "bloggskyldu" fannst mér kominn tími til að rita e-ð fyrir ykkur lesþyrsta fallega fólk
Á morgun mun ég sennilega deyja og af því tilefni vil ég þakka góðar stundir og biðja ykkur öll vel að lifa!!!! Ástæðan fyrir vitanlegum dauðdaga mínum er sú að ég á að mæta í skólann með böns af fólki sem ég þekki ekki neitt og er ég með nettan kvíða og ógleðistilfinningu vegna þess!!
Mér finnst alls ekki skemmtilegt og hvað þá gaman að vera umkringd ókunnugum og finnast ég vera alein í heiminum, því ég er haldin svakalegri feimni og minnimáttakennd, og gott fólk, sú blanda er ekkert sérstaklega spennandi!!
Innan um spekið mitt að framan, s.s í mallanum, líður mér að sé risastór steinn sem hvorki er hægt að gjóta niður, kreista út né kasta upp svo að ég held ég ætti bara að vera heima...
Við Viktor skelltum okkur í veiðiferð með þeim M og Axel og Hallmundur kom með. Við fórum í Stapavatn á Vatnsnesinu.. Þetta var alveg hrikalega gaman og munum við mæðgin svo sannarlega endurtaka leikinn. Viktor veiddi sinn fyrsta fisk og var M snör í snúningum að losa greyið af önglinum, og sökum hjartagæsku ( og aumingjaskaps) móðurinnar, var leyft fiskinum að snúa aftur til sinna heimkynna
Svo kom að því að ég mátti veiða og fóru af stað miklar kennsluaðferðir þeirra feðgina, M og Hallmundar, í að sýna viðvaningnum hvernig ætti að kasta út, þessu snæri eða hvað það kallast. Nú, kennslan vildi nú sosum ekki síast inn í fyrstu, því að veiðistöngin flaug útí vatnið, og ég næstum á eftir
Eftir nokkrar tilraunir hófst nú veiðiskapurinn og men hvað þetta er gaman. Ekki leið á löngu þar til "kjellingin" fékk einn vænan á snærið og kom þá að því vandasama. Að draga þetta inn og koma þessu uppá land. M alveg hentist til í loftköstum, ( ok smá ýkt



Fleiri myndir eru í albúminu sem er staðsett hér að ofan...
Af jólagjöfum er það að frétta að 7 eru komnar í fína jólapappírinn hans Viktors og meððí, 3 í vinnslu og ca 5 uppá hugmyndaborðinu.. gengur hægt en gengur þó
Svo að lokum langar mig að biðja ykkur um að kasta á mig línu, ( tala eins og fiskiveiðimaðurinn mikli), því mér finnst ótrúlega leiðinlegt að skrifa blogg fyrir daufum augum
Hafið það sem allra best,
iRikk
15.8.2009
Langt síðan síðast...
En síðan síðast þá er ég byrjuð að vinna og er það bara fínt. Gaman að komast í þessa lífsins rútínu og hafa e-ð fyrir stafni.
Það er langt liðið á sumar og ekki seinna vænna en að gera sig klára fyrir kaldan og langan vetur. Hann mun þó vera ansi strembinn þetta árið því að mín ætlar ( eins og alþjóð veit) að leggjast í skólabækurnar aftur..... taka 2
Númm, Viktor er byrjaður í leikskólanum eftir gott frí og er hann ansi kátur með það. Er alveg svakalega duglegur að nota wc, því hann er jú orðinn stór strákur og þeir ásamt hinu kyninu nota klósettið
Hann er sífellt að auka orðaforðann og er endalaust sem kemur uppúr honum þessa dagana og erum við afar ánægð með það auðvitað. Hann á samt að vera í stoðkennslu í leikskólanum, þar sem hann þykir vera á eftir í tali og er það mjög gott fyrir hann að fá þessa aðstoð.
Vinur hans og jafnaldri, Þórólfur, var fyrir nokkru með svona gjafaband( pakkaskraut) um hálsinn og mamma hans var að biðja hann um að taka þetta af sér, því þetta gæti verið hættulegt. " Nei mamma, ég er læknir! Ég ætla að hjálpa Viktori að tala eins og ég..."
Þessi sveppur er hér að dafna í garðinum okkar, ansi kúl..
Í gær hélt stórvinur okkar hann Axel Noi uppá 4 ára afmælið sitt. Það var ekki að spyrja að kræsingunum sem hún Emm bauð uppá. Viktor var alveg í essinu sínu og meira en það, því ég hef aldrei séð hann svo hressan kringum fólk sem hann þekkir ekki einu sinni !! Þaðan fór maður vel saddur og var nánast meltandi allt kveldið
Takk enn og aftur fyrir okkur, Emm mín.
Svo munu flestar kvenkynsverur Húnaþings, já og aðkomukonur leggja af stað í hina árlegu kvennareið í dag. Þemað er glamúr og glimmer og er mikið lagt upp í búninga og meððí fyrir þessa ferð. Góða skemmtun, stelpur
Endilega að kvitta, alltaf gaman að sjá hverjir eru að lesa bullið hjá manni
Hafið það sem allra best
iRIkk
10.8.2009
Mér var hugsað til þessa...
Sumarið 2001 ákváðum við M og Hilla að leggja land undir fót og skreppa til Benidorm. 3 vikur í sól og sælu, mmm...
Og þessa ferð s.s. flug, hótel og allt klabbið fengum við á 65.000 kall, takk fyrir. Reyndar ekki Hilla þar sem hún ákvað seint og síðar meir að koma með.
Nú, ég ætla ekki að fara út í öll smá-atriði hér en það er eitt sem gerðist sem ég mun aldrei gleyma, svo lengi sem ég lifi.
Jámm, þá voru þessar 3 vikur undir lok komnar og daginn áður en við fórum þá fundum við svona dónó- búð. Hún var merkt með skilti framan á svona litlu molli sem benti að hún væri á bak við. Við fórum þangað, s.s fyrir aftan húsið og þar var ein hurð með rosa þykku gráu tjaldi fyrir, þarna var hún
Jæja, við reddý með moninganna, röltum inn og þar kom á móti okkur maður.
Sko, áður en við komumst í búðina, þurfti maður að labba inn smá gang sem var með svona klefum, þar gat fólk horft á myndir og gert e-ð skemmtilegt, höhömm, þið skiljið...
Allavega, þarna stendur maður í dyragættinni að sínum klefa, með "allt úti" og bendir okkur, hver af hverri, að koma inn. Við afþökkuðum allar pent og áfram hélt för í búðina.
Nú, svo komumst við loks í búðina, og þá var gargað e-ð í hátalarann. Við Hilla alveg úti á túni en M, sú spænskumælandi, fór að skellihlægja. Og sagði okkur að konan í hátalaranum hefði verið að tilkynna um "slettur" á ganginum...
Við lítum að afgreiðsluborðinu og þar stendur önnur afgr.konan, með fötu, moppu og lengstu uppþvottahanska sem ég hef séð, náðu langt yfir olnboga og arkar fram á ganginn. Þá hafði gæjinn bara "úðað öllu sínu" út um allan gang, þvílíkur viðbjóður...
Þarna í búðinni skoðuðum við alls konar tæki og tól, enda 3 einhleypar stelpur á besta aldri, híhí..
Það var keypt alls konar dótarí, m.a. handjárn og svo svona víbró með alls konar nuddstútum.
Ok, svo komum við á hótelið og búnar að pakka öllu niður nema sex- dótinu. Vorum að skoða og sonna og svo fór ég aðeins kíkja á víbrarann, ég notaði hann samt ekki, sko...
Svo föttuðum við náttúrulega að það var nú bara samasem ekkert hægt að koma þessu dóti neins staðar fyrir, þannig að við TRÓÐUM þessu ofan í minnst- pökkuðustu töskuna og rétt náðum að loka henni.
Jæja, við flugum heim og sáttar og sælar með frábæra ferð. Versluðum í fríhöfninni og eina sem eftir var, var að koma sér útí bíl og bruna heim.
Nú, við rogumst með allt okkar hafurtask í tollinn.
Og notabene, hef bara aldrei séð jafn mikið að tollvörðum og akkúrat þennan dag.
Við erum þarna 3 í röð með allt draslið og skellum töskunum uppá bandið í gegnumlýsinguna, og þá;
" Stelpur, takiði þessa og þessa tösku og komið hérna á bak við tjaldið".
"Við??"
Við M þorðum ekki öðru en að hlýða og fórum með töskurnar þarna yfir. Hilla beið með allt hitt draslið frammi við "tjaldið".
Og ég tek fram að þetta tjald var bara ein lásý gardína sem gerði svosem ekki neitt.
Allvega, við setjum töskurnar á borðið og þeir kíkja í þá fyrstu, og ekkert þar. Svo kemur að hinni töskunni.
" Hvað er þetta sem hreyfist í töskunni?"
"Ha?? Hreyfist?"
"Já, hvað er þetta sem hreyfist í töskunni?!"
Við báðar, eldrauðar í framan, fullt af tollvörðum, og fólki hinum megin við þessa helvítis gardínulufsu, sem mátti alveg missa sín, slíkt var gagnið af henni!!!!
" Viljiði opna töskuna?"
Og á þessu stigi málsins mátti heyra lágt, ddddrrrrrr...
Og taskan var opnuð, þar mátti sjá SEX-SHOP pokann á FULLU, ddddddddrrrrrrrrrr....
Guð minn góður, ég hélt að ég myndi deyja.
Og auðvitað þurftum við að taka upp pokann.
Þarna stóðum við, eldrauðar, skömmustulegri en ég veit ekki hvað, og héldum á SEX- SHOP poka, sem víbraði á fullu og hávaðinn í þessu djöfulsins drasli yfirgnæfði allt þarna, að mér fannst.
Þá hafði þessi ánnskotans víbrador verið á fullu í töskunni, allan tímann í vélinni...
Þarna máttum við taka upp ALLT sem var í pokanum. S.s helvítis víbradorinn, nokkur handjárn, og ýmislegt fleira sem ég ætla ekki að telja upp . Hilla var nær dauða en lífi af skömm samt var hún hinum megin við "tjaldið" og slapp alveg við þetta, allavega vissi enginn að hún væri með okkur...
Og það gjörsamlega bilaðist allt úr hlátri.
Einn kallanna tók upp eitt af handjárnum og sveiflaði því svona á puttunum og spurði:
"Stelpur, hvaðan eru þið að koma??"
"Be-Benidorm, hi,hi...hmm"
Í alvöru, þetta var það mest niðurlægjandi sem ég hef lent í...
Og ég tek enn og aftur fram að það var fullt að fólki þarna, bæði starfsmenn og flug-gestir og það fór sko ekkert á milli mála hvað var sagt þarna...
Svo máttum við nú aldeilis pakka þessu aftur niður í helvítis SEX-SHOP pokann, troða þessu aftur ofan í töskuna og hypja okkur út.
Og það eina sem glumdi í hausnum á einni okkar var:
" Vinsamlegast slökkvið á öllum raftækjum fyrir flugtak....."
Hafið það sem allra best,
iRikk
1.8.2009
Það er töff..

iRikk..
31.7.2009
Ég er...
- .. ótrúlega ánægð að vera stundum slugsi, því annars værum við með stærsta lánið okkar í erlendu...
- .. mjög sátt, að þrátt fyrir að bíllinn okkar sé alls ekki sá flottasti, óbeyglaðasti og óryðgaðasti, þá staðgreiddum við hann á sínum tíma og enn gengur hann eins og nýr
- .. hrikalega ánægð með að við höfum aldrei lent í vanskilum með neitt... 7, 9, 13...
- .. fegin að ég sé búin að borga óendurkræf skólagjöld, þá þarf ég ekki að efast lengur um það...
- .. rosalega ánægð og stolt að gaurinn minn sé endalaust að bæta í orðaforðann og er duglegri við það á hverjum degi..
- .. þakklát fyrir, að þrátt fyrir að eiga fáa peninga milli handanna eftir öll gjöld og reikninga, þá eigum við ofan í okkur og á...
- .. nokkuð hress með að við verðum heima allar þessar hátíðar-helgar, enda bæði að vinna..
- .. mjög ánægð og fegin með að hafa farið á ballið um síðustu helgi, því það lyfti sálartetrinu mínu hátt, hátt upp
Og þannig er nú það...
Hafið það sem allra best,
iRikk
28.7.2009
Back to the real life...
Jæja, allavega þá er Eldur í Húnaþingi-hátíðin yfirstaðin og tókst rosalega vel í ár. Mikið og margt á boðstólnum fyrir alla aldurshópa og sérstaklega mikið fyrir börnin.
Opnunarhátíðin var mjög skemmtileg og byrjaði hún í Félagsheimilinu með harmonikkubattl og smá breiksýning. Frábær bryggjustemmning sem myndaðist þegar All Star lúðrasveitin dró gestina með sér í skemmtilega kvöldstund niðrá bryggju. Þar var kjötsúpa á boðstólnum, nytjamarkaðurinn var opinn og stompið tryllti lýðinn.
Litla sjoppan var opin, alveg magnað hvað þessi sjoppa fær alltaf nóg að gera þessa örfáu daga sem hún er opin. Er aldrei meira stemmd fyrir appelsín í gleri með lakkrísröri en þá ;) Gaman að því.
Svo á fimmtudeginum var listasýning og breiknámskeið fyrir börnin, melló músíka ásamt e-u salsa bandi, þar var víst rosa gaman..
Á föstudeginum var svo boðið uppá leiki fyrir krakkana, listasýningin enn opin og svo var leikhús fyrir börnin. Þar á eftir var dans- og söngnámskeið, fimleikar á hestum og grillað var ofan í liðið á Zírópinu. Þá voru tónleikar í Borgarvirki með Herði Torfa og líka Big band úr austursýslunni. Að endingu voru líka rosagóðir( er mér sagt) tónleikar á Zíróp um kvöldið. Þar var Kimi Records á ferð með svakalegar hljómsveitir sem auðvitað trylltu lýðinn sem endranær.
Laugardagurinn var nú ekki síðri þar sem heljarinnar dagskrá var í Skrúðgarðinum sem innihélt m.a fyrirtækjakeppni, hoppukastala, grillaðar pulsur og meððí og dásamlegt veður. Svo var hinn frægi sápubolti stundaður og mikið húllumhæ þar.
Ball var haldið um kveldið, fyrst barnaball og svo fullorðins. Skítamórall sá um stuðið og tókst það svo sannarlega. Undirrituð lét undan þrýstingi Emm og mætti og það var líka svona hrikalega gaman. Mikið dansað, hlegið og mikið af fólki. Hitti gamla sjaldséða vini og alls konar fólk líka.
Dagurinn eftir var nú ekkert til að hrópa húrra fyrir og stend ég enn á þeirri skoðun að áfengi fer ekki inn fyrir mínar varir í bráð!!!
Svo er Viktorinn nú enn í fríi og við púslum saman dögunum, Fríða systir er ósköp dugleg að hjálpa okkur að ég minnist nú ekki á Hlynza bró, sem stóð sig alveg eins og hetja, með Kárann allan föstudaginn og Hlynzinn var alls ekki Óþunnur þann daginn
Það lítur út fyrir að við verðum bara heima þessa Versló-helgina þar sem við "hjónin" erum bæði að vinna. Ég á næturvöktum og Valdi á dagvöktum. Það er sosum fínt bara. Fiskidagshelgin lítur einnig út fyrir að vera heimahelgi því þá er ég að vinna. Smá súr yfir því en ekkert hundrað í hættunni, við förum þá bara á næsta ári
Svo var ég að skipta um netfang og það er tatatarammmmm ingunnrikk@gmail.com
Og þannig er nú það bara...
Hafið það sem allra best,
iRikk
17.7.2009
Alein í heiminum...
Valdi er vinnandi lon og don, fótboltaæfingar og keppnir þess á milli, stompar eins og óður maður og sést nú afar sjaldan eitthvað hérna heima.
Ég er nú sosum ekkert voða upptekin, vika í að vinnan byrjar. Ég veit hreinlega ekki hvort ég rati niður í vinnu, svo rosalega langt síðan ég vann síðast..
Annars er nú fyrirhuguð orlofsferð á Akureyri með gullfallegum húsmæðrum héðan og munum við leggja upp í ferð í fyrramálið. Það verður nú gaman.... Búin að kaupa hvítt og það komið í kæli, njomm, njomm...
Skólinn er svo á næsta leyti og viðurkenni ég nettan magaverk út af því... Mikið og erfitt, en skemmtilegt og á mjög við mig.. Þetta verður e-ð sniðugt
Fyndið hvað maður er alltaf búin að skipuleggja allt og svo er allt farið til fjandans!!! Allavega gerist það alltaf hjá mér, búin að negla niður svaka rútínu/dagskrá og svo áður en ég veit af, þá er ekkert eins og á að vera, arg... merkilegur andsk....
Jæja, pistillinn verður nú ekki merkilegri en þetta í bili.
Hafið það sem allra best,
iRikk
13.7.2009
Allt & ekkert..



Nú, það er búið að halda uppá afmæli karlanna á þessum bænum. Slegið var upp veislu á laugardaginn og fullt húsið af gestum. Ég gerði þessa "fínu" lestarköku, sem var nú eiginlega hálfgert lestarslys, en barnið var ánægt með hana, svo að það var vel. Viktor var alveg alsæll með allar fínu gjafirnar og að fá alla krakkana í heimsókn. Takk fyrir okkur
Senn fer þessu langa sumarfríi mínu að ljúka og finnst mér það alveg fínt. Búin að vera svo lengi í sumarfríi að ég efast um að ég þekki lengur starfsfólk og skjólstæðinga... En fríið búið að vera mjög fínt og mörgu komið í verk. Garðurinn er nú ekki alveg full klár en eins og ég sagði í síðustu færslu þá kostar allt peninga svo að ég læt þar við sitja þetta sumarið. Nóg að gera framundan svo að e-s staðar þarf að stoppa.
Nú, það er enn uppi á borðinu að halda í nám og er ég farin að hlakka til. Mér til mikillar ánægju ætlar önnur Hvammstangamær að fara í sama nám og ég, og verður því gott að hafa e-n með sér á þessari leið.
Sumarfrí í leikskólanum er byrjað og eigum við sko eftir að hafa það ansi notalegt, allavega þar til ég fer að vinna. Valdi fer sosum ekkert í frí en við höfum notað vel helgarnar þar sem hann er í fríi líka, í að gera e-ð skemmtilegt.
Það verður nú ansi strembið og hálflélegt heimilishald þegar að báðir foreldrar eru vinna um helgar í vetur, Valdi aðra hvora helgi og ég þrjár í röð!!! En maður er svo sannarlega þakklátur fyrir að hafa vinnu, svo að það þýðir lítið að kvarta. Þetta verður án efa doldið púsluspil en það vonandi reddast
Svo get ég hreinlega ekki staðist mátið að taka myndir í bakgarðinum á kvöldin. Skýin og sólin eru oft svo rosalega flott að ég get ekki hætt að dást að því. Þessar myndir tók ég eitt fallegt kvöld, æðislegar


Hafið það sem allra best
iRikk
25.6.2009
Allt að ske!!!
Þetta sumarfrí mitt fer nú óðum að styttast og er ég sko heldur betur búin að vera dugleg. Ég er nánast flutt í garðinn minn og djöflast þar líkt og enginn sé morgundagurinn.
Búin að gróðursetja um 96 plöntur í garðinn, slá hann grilljón sinnum, búin að rogast um garðinn með steina í beðin og mold í allt klabbið, kantskera og ég veit ekki hvað og hvað.
Erla Björg er minn ráðgjafi þessum garðaspekúleringum og mun verða mjög flottur þegar allt er komið á sinn stað.
En allt kostar þetta peninga og þar sem við erum ekki beint að rækta þá né skila þeim af okkur í lettið, þá er verkefnið bara tekið í litlum skömmtum. En ég er að vera búin að kantskera og gróðursetja allan hringinn svo að það er nú mesta vinnan. En men, hvað mér finnst þetta skemmtilegt!!
Best finnst mér að vera úti mjög seint á kvöldin, þá er yfirleitt alveg dúnalogn, sólin að setjast og kyrrðin er yndisleg. Þá get ég endalaust verið að dunda mér
Nú, jólagjafirnar eru enn í skipulaginu og prjónar kjellingin á milli gróðursetninga og garðsláttar
Þetta eru pakkarnir sem eru alveg tilbúnir...

Svo í dag bárust mér heldur betur góðar fréttir. Ég sótti um Iðjuþjálfun í fjarnámi frá Háskólanum á Akureyri og fékk inn. Ég sagði ekki neinum frá ef ske kynni að ég fengi ekki inn en svo fór að mín er að vera námsmaður og gaspra ég því um allt
Ég var ekki alveg að fúnkera það í fyrrahaust en nú er ég tilbúin og ætla að reyna að tækla þetta í vetur... Reyndar verður klásus ( samkeppnispróf) í des vegna mikillar aðsóknar en þá verður það bara markmiðið, að ná því

Sumarhátíðin í leikskólanum hans Viktors var í gær og mikið stuð. Sem betur fer hætti kallinn þarna uppi að úða á okkur rigningu svo að sólin skein og ágætis veður.. Þar var farið í skrúðgöngu, leiki, sungið og svo var boðið uppá grillaðar pulsur og trópí. Mjög skemmtilegur dagur og börnin svaka ánægð. Svo fórum við Viktor á rúntinn og sáum þá þessa mömmu synda um með ungana sína í höfninni, svo sæt fjölskylda, næstum alveg jafnsæt og við

Svo ber hér að líta á nýjasta fjölskyldumeðliminn hjá Guggu og Jóni. Svo sætur litli frændi.. Ég gat hrenilega ekki hætt að halda á honum þegar þau komu á Dalvík þegar við vorum þar í heimsókn... svo sætur..

Læt staðar numið að þessu sinni.
Hafið það sem allra best
iRikk
18.6.2009
LæGð.Is
Reyndar fórum við norður um helgina, og af e-m fíbblagangi ákvað ég að skilja þá eftir heima, s.s prjónana. Mæ god, það mun ég aldrei aftur gera. Heil helgi án þess að prjóna, ég var sennilega eins og fíkill í afeitrun, ömurlegt!!! Þó svo að félagsskapurinn hafi verið skemmtilegur þá vantaði mig samt "fíknina" mína
Já, Ann'amma er flutt til Dallas, já eða Dalvíkur og er það bara yndislegt. Við fórum norður sumsé og komu allir hinir fjölskyldumeðlimirnir líka og var slegið upp tjaldbúðum í garðinum og grillað og allt mögulegt skemmtilegt. Yndisleg helgi.
Viktor fór sem fyrr segir í útilegu með Öll'ömmu, afa Dreka og Fríðu Björg helgina áður. Það var víst voða gaman og prinsinn fékk nú flestu sínu framgengt og ánægður með það. Fékk grilljón ísa á dag og það hefur nú aldeilis ekki verið leiðinlegt
Hérna heima gengur nú allt sinn vanagang. Við Viktor erum ansi miklar kúrimúffur þessa dagana og látum leikskólann bara um lönd og leið þegar okkur hentar. Kannski ekki sniðugast þegar hann litli þarf á mikilli rútínu að halda en það er nú sumar og sonna. Hann er fullri vinnu við að mála jólapappírinn, híhí, og mamman að búa til gjafirnar... Ótrúleg geðveiki eitthvað
Hann fær nú hádegishlé og kaffi svona inná milli... hehehe...
Neinei, annars er garðurinn svona soldið tættur núna, þar sem húsfrúin er í lægð og ekki mikið að nenna að dúllast við hann e-ð. En þetta fer vonandi allt að koma. Margt sem mig langar að gera og græja og reyni mitt besta að koma geðinu í gott horf
Jamm ég ætla að láta þetta duga að sinni. Dugleg að kommenta lömbin mín...
Hafið það sem allra best..
iRikk
7.6.2009
Sumarið er tíminn...
Það hefur nefnilega aldrei verið neitt gert í þessum garði og þá er svo gaman að geta gert hann alveg frá grunni. Við erum einmitt búin að vera að gera beð á milli okkar og níska sjómannsins... já ok, hann heitir Siggi en ég hef alltaf heyrt hann kallaðan níska sjómanninn og get bara ekki breytt því. Þannig að ní... Siggi, ef þú ert að lesa þetta, þá bið ég þig um að fyrirgefa
Þannig nú er garðurinn væntanlega að fá smá mynd á sig og sonna. Við erum að plana kartöflugarð, tré hér og þar, svona svo að garðurinn verði mannbjóðandi, en það eina sem Valdi vill um það mál að segja er að hafa pláss til að spila fótbolta!! iss, piss, hann getur þá fengið e-n smá blett út í horni...
Við erum einnig búin að koma okkur upp smá "kreppupalli". Við höfum ekki alveg efni á að kaupa rándýrt pallaefni, svo við erum með bretti, röðuð hér fyrir framan svalahurðina og svo á bara eftir að fá sér plötu ofan á, vola !!! Hinn fínasti pallur...
Nú, þá víkjum við sögunni að jólagjafageðveiki heimilisfrúnnar!!! Það er nú búið að pakka inn 3 pökkum, en það vantar slaufur og borða og slíkt. Við Viktor erum búin að dunda okkur við að mála á pappír og gera fínan.
Ég tók myndir af þeim og ætla að sýna ykkur. Það sést samasem ekkert á myndunum en ég setti allskonar glimmer í málninguna og kemur það mjög flott út. Ég er alveg hæstánægð með þessa pakka og þeir verða líka svo persónulegir því að litli guttinn sá um að "búa" til jólapappírinn


Svo var það um daginn að Viktor fór framúr á undan okkur og komst í kræsingar kveldsins áður... nema hvað að það var ekki það ætilega sem heillaði hann heldur einn tússpenni og auðvitað lét barnið ekki sitt eftir liggja með að skreyta skálina sem á borðinu stóð

Svo fín
Nú, annars er ég hálfvængbrotin núna. Viktor fór með afa Dreka, ömmu, og Fríðu í útlegu á föstudaginn og svo skunduðu þau suður í dag og koma á morgun. Þetta var nú fínt á fös og lau en nú má hann vera kominn heim
Um helgina næstu ætlum við skunda til Önnu ömmu, sem er að flytja til Dalvíkur. Og er áætlað að hjálpa þeirri "gömlu" að koma sér fyrir og sonna. Mér skilst að allt liðið ætli að mæta svo að það mun nú ekki vanta fjörið á þeim bænum
En að lokum þá ætla ég að leyfa ykkur sjá myndir sem ég tók eitt kvöldið. Það sem ég elska mest við sumrin er kvöldsólin og þegar hún er að setjast. Litirnir og kyrrðin sem fylgir þessum fallegu sumarkvöldum eru yndisleg og ég er óð í að taka myndir af slíku.

Þetta finnst mér æðislegt að hafa í bakgarðinum mínum á kvöldin, verður ekki fallegra...
Hafið það sem allra best,
iRikk
2.6.2009
Baráttan í bólinu...
Til að drepa niður alla tilhlökkun strax, þá er ég ekki að fara að skrifa um kvöldleikfimi okkar hjóna, sóðasóðafólkið ykkar
Þó svo að ég sé ekkert að drepast úr blogg-efni, þá er örvæntingin ekki svo mikil, hehe...
Jæja, en já það er nú smá valdabarátta í rúminu hjá okkur, og er það Viktor Kári sem veldur þeirri skemmtun. Alveg síðan hann fór að hafa vit á því að skríða uppí, þá hefur hann nú verið sá plássfrekasti og myndu sennilega fáir toppa það!!
Aðeins yngri þurfti hann alltaf að liggja þversum í rúminu, á koddunum, þannig að við foreldrarnir máttum sofa með hausana á náttborðunum... og ég get sagt ykkur að það er ekki sérlega þægilegt.. og á allavegan hátt skal hann liggja og það er ekkert gefið eftir. Ef maður reynir e-ð að hagræða krakkanum svo bjóðandi sé að dorma þarna, fær maður spark, er sleginn eða hvaðan af verra!!!
Þessa dagna, já og undanfarnar vikur, er ekki einungis hann sem kemur uppí. Ónei, hann arkar með sængina sína, koddann og ÁTTA litlar lestar sem fara með honum hvert sem er!!
Þessu dröslar hann með sér á nóttunni og það tekur hann nokkra stund að flytja þetta allt uppí og svo að koma sér fyrir. Allt í lagi með það.
Við erum með s.s tvíbreiða sæng og það er alveg fínt fyrir okkur tvö. Nema það er ekki alveg að henta okkur 3 því að Viktor er svo heitfenginn/ur?, á nóttinni að hann sparkar henni alltaf af sér, og þar af leiðandi af okkur líka!!! Þótt svo að hann drösli sinni yfir þá er hún ekki notuð, sjáiði til. Og þetta er að gera mig brjálaða!!
Ef maður er ekki að nenna að toga sængina upp á mínútufresti, þá skal maður bara krókna úr kulda og hananú!!
Það þýðir ekki að færa hann yfir aftur, því hann vaknar alltaf þá og verður alveg tjúllaður.
Tvisvar hef ég gefist upp og farið í svefnsófann í tölvuherberginu og sofið alveg ágætlega...
Spurning að maður búi um sig þar framvegis, ef ske kynni að hann hætti aldrei að skríða uppí???
iRikk
þreytt og kalt, bbbrrrrrr....
28.5.2009
Jeminn einn og eini...
Ég veit ekki alveg hvað olli því að ég fór að pæla í þeim og hvað þá að byrja. En jú, ég á eftir ( vonandi) að hafa það ansi náðugt þegar hátíðin nálgast því þá verð ég vonandi búin með meirihlutann af gjöfunum sem við gefum. En ég toppaði sjálfa mig um daginn, að ég skrapp í Döggu búð- eða Hlín, réttara sagt, og fékk að klippa út JÓLAPAKKAMERKIMIÐA, í e-u tæki sem hún á. Svipurinn á henni þegar ég bar upp erindið mitt var sirka grátbroslegur. Mikið held ég að hún hafi hugsað hvort ég væri endanlega að tapa mér!!!! hehehe...
En senn líður að jólafríi... grín, sumarfríi og er það vel. Mig er mikið farið að vanta frí og hugsa um mig og mína... og kannski að kíkja aðeins í garðinn minn og sonna.
Annars þrái ég að ferðast mikið í fríinu en sennilega er fjárhagurinn ekki alveg að bjóða uppá slíkt þessa mánuðina. Og þar sem ég er ein í fríi þessar næstu vikurnar þá er ekki mikið um að maðurinn minn komi með mér. Því hann mun vera að vinna í allt sumar og ekkert sumarfrí hjá honum...
En á jákvæðu hliðarnar skal líta, því minnstu munaði að Valdi yrði atvinnulaus í sumar, þannig að jú, ég er þakklát að hann skyldi fá vinnu.
Þannig að ég og Viktor munum sennilega bara að flakka e-ð og draga Valda með um helgar, þegar hann á frí...
En já, svona gengur lífið hjá okkur á Melaveginum. Ég elska þegar sumarið kemur og er, að þá eru allir skemmtilegu nágrannarnir okkar í görðunum sínum að stússast og þá er svo mikið líf í götunni. Væri nú alveg til í við hefðum kannski eitt eða tvö götugrill yfir sumartímann... ?? það er nú ágætis hugmynd, pæli í því...
Svo núna um Hvítasunnuhelgina mun ég vera kona einsöml en að vinna þó, eins og í fyrra, og auglýsi ég hér með eftir e-m skemmtilegum til að leika við mig e. vinnu, þ.e kl 22. Myndi ég vilja að viðkomandi hafi áhuga á að fá sér gott í glas og hlæja og hafa gaman með mér eins og enginn sé morgundagurinn ;O) Hefur e-r áhuga????
En, já það er nú ekki mikið að frétta af okkur þessa dagana svo ég læt staðar numið að sinni.
Hafið það sem allra best og njótið sumarsins.... það ætla ég að gera ;)
Þar til næst...
iRikk
19.5.2009
Norðanátt.is
Reyndar má hún eiga það, norðanáttin, þá veðrið, að það er gasalega sniðugt að vera með þvottadag... ég henti út nokkrum nýþvegnum handklæðum og þau voru orðin skræfaþurr á tveimur tímum... geggjað...
Eins og þið sjáið þá er líf mitt ekkert sérlega spennandi þar sem ég sé góða punkta í rokrassgati dauðans, eins og hefur verið hér í e-a daga !!!
Við erum bara ótrúlega fersk og fín, litla fjölskyldan. Allir að sinna sínum vinnum og hobbýum...
Ég prjóna eins og enginn sé morgundagurinn. Er búin með 5 jólagjafir af held ég um 20-25!! Ég man ekki hvenær mér datt í hug að starta jólagjafastússi en er ótrúlega sátt við það. Þetta eru eigulegar gjafir, mikið lagt í þær og þar að auki eru þær flottar, þó ég segi sjálf frá.
Mig langar líka að eiga e-n pening í enda árs og byrjun þess næsta

Það var vorhátið í leikskólanum hjá Viktori um daginn. Hún heppnaðist mjög vel og stóðu börnin sig með prýði. E-ð upplifði Viktor sig í hávaðaroki,( inni í sal) því allan tímann ríghélt hann í hattinn sem hann bar á höfðinu, og hefði sennilega setið sem fastast þótt svo að litlu fingurnir hefðu alveg látið hann vera

Við Viktor skelltum okkur svo í skemmtiferð í Borg óttans um daginn. Þar heimsóttum við vin okkar, Axel Noa og mömmu hans. Þau eru búin að vera svo lengi í Reykjavík að við urðum bara að hitta þau. Hann er algjör hetja, þessi litli vinur okkar. Er búinn að vera í þvílíkum rannsóknum og læknastússi að maður hefur ekki tölu á öllu sem búið er að láta þennan litla kropp ganga í gegnum. Það var æðislega gaman að hitta þau því það var langt síðan síðast
Svo kom skemmtileg frétt um Æskan og Hestinn í Bændablaðið um daginn. Og mynd af mínum klára knapa, veifandi og sætur, svo fínn. Það voru líka fleiri myndir af börnum úr Þyt. Gaman að því
Nú, svo fer sumarfríið mitt alveg að bresta á, eða 1 júní!!! Hvað í fjandanum á maður af sér að gera í því??!! Hmm, mig langar alveg ótrúlega að fara í útilegu, sumarbústað, ferðast mikið og allt og allt. En þar sem minn maður fær ekkert frí þá veit ég sosum ekkert hvað verður af hverju !!! E-r uppástungur??

Fríða, litla systir mín, á afmæli í dag og óskum við henni innilega til hamingju með daginn.
Þessi mynd er tekin af henni og Grímu á hestasýningunni Æskan og Hesturinn á Akureyri í byrjun maí.
Ég ætla að skora á ykkur, sem lesið þetta blogg, að skilja eftir smá kvitt eða skemmtilegt komment, það er ekkert gaman að skrifa og skrifa og fá ekkert komment til baka.
Annars á Sigrún Heiða verðlaunin í þeim efnum, ótrúlega dugleg að kvitta alltaf, elskan

Nú, annars ætla ég nú bara að enda þetta á mynd af strákunum mínum
Hafið það sem allra best...
iRikk
5.5.2009
Æskan & hesturinn '09




Þá er þessi skemmtilega helgi búin. Og heppnaðist alveg með eindæmum vel. Við skunduðum norður á Akureyri ásamt fríðu föruneyti sem er með okkur í hestamannafélaginu. Þá er ég að tala um börnin og unglingana í æskulýðsfélagi Þyts og foreldra/forráðamenn. Það var held ég um 70 manns sem fór í þessa ferð.
Við fengum félgashús e-s hestafélags leigt og var þar borðað og gist fyrir þá sem vildu.
Það var nú fyrst skundað í sund í Hrafnagili og var það mjög skemmtilegt... Nema að þegar við erum að klæða okkur þá nær Viktor í debetkortið mitt. Ok, ekkert meira með það nema að þegar við vorum að fara þá finn ég hvergi helv... debetkortið!!! Great, aleigan mín á kortinu!!!
Ég ákvað nú að halda ró minni þar sem klefinn var nú fullur af dömum á öllum aldri og spurði son minn blíðlega, aftur og aftur, hvað hann hafi gert við kortið...hann tók nú bara fyrir eyrun og bullaði e-ð bull og hljóp í burtu... Arg, ég var ekki alveg eins róleg og leit út fyrir að vera....
Aldrei sagði krakkinn neitt, ég á útopnu að leita að djöfulsins kortinu, á barmi taugaáfalls...
Á þessum tímapunkti voru allavega 2 að leita með mér, og ég tætti allt uppúr töskunni nokkrum sinnum, fór í alla vasa á öllum fötunum okkar mæðgina, skreið með fram búningsskápnum, undir bekkina og ég veit ekki hvað og hvað...
Þarna var ég ekki alveg að höndla þetta ástand og var að verða ansi taugaveikluð þarna... Tók í krakkann og spurði hann MJÖG ÁKVEÐIÐ; Viktor, hvar er myndin af mömmu??!!!!!
Mydin?? sagði hann og þá fattaði hann hvað ég átti við. Nei, nei, þá hafði hann troðið því inn í e-n læstan skáp þarna, voða montinn með sig!!! Hjúkket, ég var ekkert smá fegin... var orðin viss um að hann hefði troðið því niður í niðurfallið á gólfinu...
Mér fannst nú samt yndislegast, og eiginlega fyndnast, að mér var hrósað fyrir mikla yfirvegun yfir korta-leitinni... en ef manneskjan hefði heyrt hugsanir mínar á meðan geðkastið var, þá hefði mér ekki verið hrósað
En jæja, þegar ég var búin að ná geðheilsunni aftur þá var skundað í félagshúsið í smá snarl og sonna og við tók svo æfing hjá krökkunum... Rosaflott reiðhöllin þarna á Akureyri. Við & hestarnir fengum smá víðáttubrjálæði, því höllin okkar er jú mun minni
Á laugardaginn var mikið að gera enda tvær sýningar hjá krökkunum. Þær heppnuðust alveg frábærlega og er maður sem foreldri þvílíkt stoltur að vera hluti af þessu frábæra starfi!!!
Kynnirinn var endalaust að hrósa öllum og þó aðallega okkar fólki fyrir frábær atriði og þá sérstaklega búningana...
Viktor var alveg alsæll með þetta og í atriðinu þeirra litlu veifaði hann allt atriðið. Hann vildi aldrei veifa þegar það átti að gera á æfingum en svo á sýningunni þá veifaði hann eins og hann hefði ekki gert neitt annað í lífinu
En svo þegar átti að skila búningum þá vildi minn nú ekkert láta hann af hendi svo glatt!! Amman þurfti nú bara að rífa hann af barninu og sætta sig svo við að fá ekkert knús né koss í bili
En þetta var með eindæmum skemmtileg ferð og heppnaðist æðislega vel. Það er hægt að sjá fleiri myndir inná myndaalbúminu mínu hér að ofan og líka á www.123.is/þytur
Hafið það sem allra best, elskurnar...
iRikk
24.4.2009
Það er komið sumar..
Jahh, en ekki byrjaði það nú vel þvi annan í sumri var hríð og ógeð. Allt hvítt og ískalt, bbbrrr.... eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan var nú ekkert sumarlegt hérna í síðustu viku...
En nú er komið meira sumarfílingur í mann enda snjórinn óðum að hverfa og ekki eins kalt og hefur verið...
Nú, annars fórum við í borg óttans í síðustu viku. Það var stuð að vanda. Valdinn þoldi nú ekki lengri dvöl en nákvæmlega einn sólarhring og þá voru eftir tveir. Já, við Viktor höfðum það sko gott í híbýlum Kanarí-afa...
Við fjölskyldan skelltum okkur í Húsdýragarðinn og var erfinginn alveg alsæll með þá ferð.


það eru fleiri myndir í albúminu hérna fyrir ofan...
Nú, þá er hinn mikli kosningardagur lokinn og að vanda kaus ég rétt
Jájá, þá er á döfinni Akureyrarferð um helgina. Þá er Viktor ásamt félögum sínum í hestamannafélaginu að fara að sýna þar á sýningunni Æskan og hesturinn. Rosagaman... Ég er einmitt að fara að baka í vikunni fyrir þessa ferð og mun húsið mitt endalaust anga af dýrindisilm... sem er alls ekki slæmt
Mig langar að segja ykkur líka frá því að Eydís er með heilabólgu, ekki heilahimnubólgu. Ég mæli með því að fólk lesi sér til um þetta á doktor.is.
Annars er fínt af henni að frétta. Hver dagur er misjafn en góðir engu að síður,
Ég er alveg gjörsamlega hugmyndalaus um e-r fréttir og gamanleik handa ykkur svo ég læt þetta enda hér...
Hafið það gott
iRikk
20.4.2009
Alveg væri ég til í að...

.. t.d Skjár 1 myndi sýna þættina Britain's got talent. Þetta eru nú bara hreint út sagt snilldarþættir og þvílíkir söngvarar þar á ferð. Það eru nú aðallega söngvarar sem eru að "meika það" og eru þau líka þrusugóð..
Kíkið á þetta...

...einnig væri ég til í að geta horft á Ellen Show hér á klakanum, í sjónvarpinu. Skemmtilegasti spjallþátturinn að mínu mati, Get alveg eytt heilu dögunum í að horfa á þá á Youtube en þægilegra væri að hafa þá bara í imbanum...
Ég er nú blessunarlega laus við stöðina þarna sem kostar morðfjár fyrir endursýnda þætti og myndi þess vegna vilja að Skjár 1 myndi sýna þessa þætti, já nú eða RÚV..

...ég væri líka alveg meira en til í að þeir félagar mínir á Skjá 1 myndu fara að sýna Lipstick Jungle... þeir áttu nú að hefjast í nóvember, en e-ð eru þeir að gleyma því það er kominn 20 apríl og ennþá er enginn Lipstick á dagskránni!!!! Doldið leiðinlegt skohh..
Annars er ég sem óð kona að prjóna þessa dagana. Og jú, tilefnið er JÓLAGJAFIR!!! Já, ég er svo hrikalega sniðug að ég er að gera jólagjafir á allt heila liðið og gengur alveg þrusuvel. Ég var meira að segja að spá í að kaupa jólapappír og sonna og bara pakka draslinu inn og senda!!! Nei, ok, ekki alveg senda en pakka inn og merkja og hafa tilbúið inní skáp... Jii, hvað desember verður afslappaður hjá mér
Ég er alveg með eindæmum löt við að sinna barnalandssíðunni hans Viktors og bið alla velunnara að afsaka það... er nú aðeins duglegri að setja inn myndir hér... Þið verðið bara að tjekka á þeim hér til hliðar, eða uppi eða hvar sem þessi linkur er...
Hef þetta ekki lengra að sinni...
iRikk
14.4.2009
Upptekin.is

Söngvarakeppnin var alveg hrikalega skemmtileg og allt gott um það að segja. Við Bjútíurnar fengum verðlaun fyrir búningana, enda ekki annað hægt. Þvílíkir listasaumar og fylgihlutir sem voru þar á ferð
Þetta var mjög gaman og sérstaklega þá undirbúningurinn.. Þrotlausar æfingar og sonna..
Það þarf vart að taka fram að það eru grilljón myndir á Facebookinu hjá hinum og þessum...


Viktorinn minn er búinn að taka þátt í sinni fyrstu hestasýningu. Hún var haldinn þann 8. apríl í reiðhöllinni hér á Hvammstanga. Það var svo gaman að sjá að höllin var troðfull af áhorfendum og færri komust að en vildu. Krakkarnir stóðu sig alveg æðislega vel og sýningin var félaginu okkar til sóma.
Svo er planið að skunda á stærri sýningu á Akureyri þann 2 maí og þá munu litlu knaparnir sýna þar líka.
Það þarf vart að taka fram að þessa snilldarbúninga saumuðum við foreldrarnir og erum ákaflega stolt af þeim
Páskafríið fór nú fyrir lítið hjá mér, enda var vinnuhelgi og ekkert við því að gera.
En strákarnir höfðu það gott heima við... Viktor fékk grilljón páskaegg en lítið var um áhuga svo ég NEYÐIST til að borða e-ð af þeim svo þau skemmist ekki
Annars er nú sumarfrí óðum að nálgast og er ég í fyrra hollinu þetta árið. Leiðinlegt að einu leyti að ég lendi á móti sumarlokun í leikskólanum, þ.e að leikskólinn fer í frí um miðjan júli, einmitt þegar mitt frí er búið....
En við erum svo heppin að hafa frábæra pössunarpíu sem tækla þetta fyrir okkur
en já, svona er það...
Hafið það sem allra best...
iRikk
2.4.2009
Alveg er...
En það sem veldur þessu brjálaða brjálæðislegamikiðaðgera er að söngvarakeppnin nálgast óðfluga og er verið að útfæra og æfa atriðið okkar. Það er sko mikið búið að leggja á sig, þó alls ekki ég mest, fyrir þessa keppni og er þetta allt að smella saman. Þemað í ár er ABBA, ekki mitt uppáhald, langt því frá, en lagið er skemmtilegt og gaman að syngja með svona fallegum konum
Viktor er einnig á fullu í sínum hestatímum að æfa fyrir sýninguna sem verður í Reiðhöllinni Hvammstanga þann 8 apríl og svo aftur á Akureyri í maí.
Þau voru alveg rosalega flott í búningunum sem við foreldrarnir saumuðum á þau, enda listasaumafólk þar á ferð
Ég var að velta einu fyrir mér. Geta fæðingarblettir bara endalaust komið á mann??? Ég er búin að koma auga ansi marga á mér undanfarið... hmm, pæling í því...
Jæja, læt þetta gott í bili, þarf að klára flíkina á prjónunum a.s.a.p...
Later,
iRikk
26.3.2009
it's my party and i cry if i want to...
Undirrituð á afmæli í dag. Og ku ég vera orðin 28 ára.
Í því tilefni ætla ég að óska mér til hamingju með daginn og vona að ég hafi það sem allra best
iRikk
25.3.2009
Mig langar svo...
Ég lærði einu sinni smá á klarinett og píanó, það var helv gaman... en þolinmæðifyrir tónfræði og æfingar á þeim tíma var ekki alveg í nógu góðu standi þá.
En held að metnaðurinn fyrir því væri í fyrirrúmi í dag, Enda aðeins þroskaðri manneskja á ferð ( vona ég ;)
Nú, annars er ekkert sérlega mikið að frétta af okkur skyttunum á Melaveginum.
Reyndar er minnsta skyttan á fullu í hestamennskunni og er móðirin ásamt mörgum öðrum foreldrum búin að láta ljós sitt skína í saumamennsku , ( þórdís, þú veist ég meina þig líka
Ég er á fullu á æfingum fyrir Söngvarakeppnina sem verður 4 apríl. Þá er þemað ABBA, sem er alls ekki í uppáhaldi hjá undirritaðri, en gaman að taka þátt samt sem áður. Erum með gott lag og að ég tali nú ekki um sjóið skohh... Vert að mæta á þessa flottu skemmtun...
Annars á tengdapabbi minn afmæli í dag og óska ég honum til hamingju með það...
Svo þarf ég víst að baka e-ð í dag þar sem ég lofaði eiginlega að koma með e-ð gott en hollt í ræktina á morgun, því þá á ég afmæli
Jæja, ætla að grúska í köku-uppskriftum..
iRikk
24.3.2009
Svo sæt...

Já, fyrir þá sem ekki þekkja þá eru þetta Hlynur bróðir og Freydís Jóna.
Ég er haldin ritstíflu svo að ég læt þessar myndir duga...
Sæt eru þau
iRikk

